Nýtt, gamalt blogg!
22. júní 2008 klukkan 01:49
Hæ hó,
átti erfitt með að setja myndir hér inn og hef því fært mig yfir á blogspot, gamla bloggið mitt...
http://kristjarna.blogspot.com
Verði ykkur að góðu:)

GOtt er gott ef GOtt er gott
26. apríl 2008 klukkan 12:41
Að tala gott er ekki gott.
Að gera gott er gott
-Kínverskt máltæki
Upplýsingaþjónusta
15. apríl 2008 klukkan 20:03
Ég held ég hafi verið með skilti á mér í dag: upplýsingaþjónusta!
Fór í háskólann. Labbaði áleiðis í Odda. Fyrir utan Háskólatorg stöðvaði eldri kona mig og spurði:
Hvaða hús er þetta?
Háskólatorg
Er Hugvísindadeild þar?
(Rann upp fyrir mér að ég hef ekki hugmynd um hvar hugvísindadeildin er)
Ég er bara ekki viss...
Var að labba frá Háskólatorgi í strætó. Ung kona stöðvar mig og spyr:
Fyrirgefðu, veistu hvaða bygging þetta er?
Háskólatorg.
(Svipur kemur á konuna)
Að hvaða byggingu ertu að leita?
Gimli...
Já farðu inn á Háskólatorg, niður stigann, til hægri, labbaði áfram þangað til þú kemur að hringstiga. Það er Gimli:)

Afturfætur
11. mars 2008 klukkan 23:27
Af hverju gengur allt á afturfótunum þegar maður er þreyttur?
Skellti mér í baðhúsið í morgun:) Ekki frásögum færandi nema þegar ég kem upp þá er slökkt á flestum sjónvörpunum við tækin og þ.á.m. skíðatækið sem ég ætlaði á. Gat ekki hugsað mér að hlusta bara á tónlist. Enda horfi ég alltaf á Rachel Ray kl.8. Jæja, skelli mér á bretti í staðinn þar sem var kveikt á sjónvarpi. Skipti yfir á skjá 1. Nei þá hoppar skjárinn til og frá en stoppar öðru hverju, samt óskýr og bara æji! Ekki mikið hægt að gera við því, reyndi að horfa á RR en nennti ekki að vera lengur en 20 mín á brettinu vegna aðstæðna. Það er líka svo auðvelt að gefast upp þegar mar er þreyttur. Neyddi sjálfa mig að lyfta á fótum en skutlaðist síðan í sturtu. Ég ætla samt að gefa mér hrós fyrir að hafa mætt og gert eitthvað þrátt fyrir þreytu og tæknilega örðugleika:)
Ég var svo að vinna á músíktilraunum í kvöld og það gekk svona rosalega vel:) Allt að gerast í tónlistarmálum á íslandi í dag. Skora á þig að mæta á morgun og næstu kvöld;)

Snjótittlingar
22. febrúar 2008 klukkan 09:39
Í morgun kl. 6-8:20 héldu snjótittli
ngar árlegan febrúarfund sinn í trjánum í garðinum mínum. Þar komu fulltrúar snjótittlingar alls staðar af landinu. Mikið var karpað og á stundum virtust allir vera ósammála öllum þar sem þeir sungu hver ofan í annan. Helstu mál á dagskrá voru:
• Komandi vor. Spá um veðurskilyrði og hvernig sumarið yrði. Þeir spá svipuðu vori og sumri og í fyrra.
• Koma farfugla, en brátt fer að líða að þeir komi láti sjá sig. Einn af Norðurlandi fékk nýverið póstkort frá Lóu vinkonu sinni sem ætlaði að etja kappi við að vera fyrst til landsins svo hún kæmist í fréttirnar.
• Vetrarmánuðirnir og erfið kuldaköst. Efst var þó á dagskrá hve litla hjálp þeir virtust hafa fengið frá mannfólkinu, sérstaklega í jan/feb. Heitar umræður urðu um þetta málefni því ekki voru allir á eitt sáttir. Niðurstaðan varð þó sú að eldra fólk væri duglegra að gefa þeim mat.
• Umskipti með vori. Nýliðar sögðu frá áhyggjum sínum varðandi umbreytingu frá Snjótittlingi í Sólskríkju. Einhver hafði logið að þeim að þeir þyrftu að fara í lýtaraðgerð.
• Félag einstæðra feðra var stofnað við mikinn vængjaþyt og réttindafélag samkynhneigðra á afmæli í sumar sem mun vera fagnað á Jónsmessunótt.
• Stefnumótaþjónusta Snjótittlinga mun opna bráðlega í Laugardalnum og þeir sem hafa ætlað sér að eignast unga í sumar eru beðnir um að hafa samband við Sóley í gegnum tölvupóst.
Fundi var síðan slitið með fyrirvara um neyðarfund ef annað kuldakast kemur. Allir héldu til síns heima sáttir við sitt sólblómafræ.

Snillingar
05. febrúar 2008 klukkan 12:22
Ég ætla að deila með ykkur hvað ég vinn með miklum snillingum:
Ég á svo afmæli, næstum því, bráðum;)
Ég á svo afmæli, næstum því, bráðum;)
Konu og karlar
23. janúar 2008 klukkan 10:41
Þessi frétt fannst mér ansi merkileg. Það er ekki oft sem maður heyrir að einhver sé fyrsti karlmaðurinn til að gegna einhverju hlutverki:) Það á jafnt yfir alla að ganga þrátt fyrir kyn. Áfram Ísland!
Lítið að frétta af mér en hins vegar nóg að gera;) Ég skil reyndar ekki hvað ég er þreytt. Ég vakna eiturhress og geri morgunrútínuna en svo þegar ég byrja að lesa þá langar mig helst að halla höfðinu niður að bringu og fá mér eina kríu. Það er hins vegar enginn tími fyrir svoleiðis og því hefur kaffi verið einn besti vinur minn. Það eina við kaffibollann er að honum fylgir oftast einhver félagsskapur og þá endar maður oft á kaffistofunni ogguponsulítið lengur en maður ætlaði sér.
Ég tók þátt í starfsdegi á laugardaginn. Það var virkilega gaman og ég kynntist heilum helling af nýju fólki:)
En ég er hætt þessu og farin að læra. C u!

Tilvitnun
21. janúar 2008 klukkan 13:54
Ég vildi ekki hætta að borða snakk þannig að samstarfskona mín lét mig heyra það:
„Vertu þá bara feit í friði!"
Ég heyrði hins vegar:
„Vertu þá bara feit og breið!"
Þá fékk lagið á heilan: „... djúp og breið..."
Man ekki textann kann hann einhver? Minnir að það sé um á, svona blauta, ekki me!
Ég var ekkert sár, fannst þetta fyndið því það sem hún ætlaði að segja kom svo vitlaust út úr henni, hehe:) Hún átti líka inni hjá mér eftir Kaldhæðnishúmorinn minn:) Set inn mynd af mér svona í lokin;)